✦ ✦ ✦

Eitthvað fallegt
er á leiðinni

Við erum að vinna í grunninum og munum gera þennan draum að veruleika bráðlega.

Þróunarteymi

Rangt lykilorð
Sagan mín
Fullkomin gjöf · Lífsminning

Gefðu sögunni þinni eilíft líf

Persónulegar spurningar leiða þig í gegnum endurminningarnar, einn kafla í einu. Áfangastaðurinn er vönduð lífssögubók, ómetanleg gjöf fyrir komandi kynslóðir.

12 kaflar · 240 spurningar · Ein bók

12 Kaflar
240 Spurningar
1 Lífssaga

Hvernig virkar þetta?

Þrjú einföld skref og lífssagan þín verður að veruleika.

1
Við spyrjum þig

12 kaflar og allt að 240 persónulegar spurningar leiða þig í gegnum lífið, frá barnæsku til þess sem máli skiptir í dag.

En þetta er ekki venjulegur spurningalisti, vefsíðan notar svörin þín til að dýpka samtalið og býr til persónulegar fylgispurningar sem byggja beint á því sem þú skrifar.

2
Þú svarar

Skrifaðu á þínum eigin hraða. Framvindan vistast sjálfkrafa og bíður þín hvenær sem þér hentar. Þú getur hoppað á milli spurninga og kafla hvenær sem er, og þú getur alltaf breytt svörum afturvirkt.

Engin pressa að klára ákveðnar spurningar til að halda áfram með söguna.

3
Bókin þín er tilbúin

Vefsíðan sér um að setja bókina saman í lokin byggða á svörunum þínum. Þú velur ritstíl — Einlægur, Gamansamur, Klassískur eða Hnitmiðaður — og kerfið setur saman lífssöguna í þeim stíl.

Þegar sagan er tilbúin færðu 5 hugmyndir að bókatitli sem þú getur valið úr eða skrifað þinn eiginn titil. Að því loknu geturðu sótt lífssöguna þína sem PDF og jafnvel pantað prentaða bók, falleg og varanleg minning fyrir komandi kynslóðir. ✨

Fullkomin gjöf

Gefðu foreldrum þínum, afa eða ömmu gjöf sem varir um kynslóðir. Börnin setja upp reikninginn og fá í staðinn ómetanlega bók fulla af minningum og sögum sem hefðu annars glatast að eilífu.

👴👵
Afi og amma

Persónulegar spurningar hjálpa þeim að setja ævi sína í orð, jafnvel þeim sem aldrei hafa skrifað áður.

👨‍👩‍👧‍👦
Foreldrar

Hvernig hittust þau? Hvernig var uppvöxturinn? Spurningarnar vekja upp minningar sem börnin vita ekki af.

🎁
Fyrir þig

Skráðu þína eigin sögu, gjöf til barnanna og barnabarnanna sem geymir minningar þínar um ókomna tíð.

Kaupa gjafakóða →

Gjafakóðinn er sendur með tölvupósti

Sjáðu hvernig þetta lítur út

Þjónustan er hönnuð til að vera einföld, hlý og gefandi á öllum snjalltækjum.

Kaflayfirlit
Kaflayfirlit
Viðtal
Persónulegar spurningar
Bókin þín
Bókin þín
✦ ✦ ✦

Lífssagan um Sigríði

Hér er dæmi um hvernig Sigríður Sigurðardóttir, fædd 1943 í Skagafirði, skráði lífssöguna sína. Sjáðu hvernig niðurstaðan lítur út.

Kafli 1 · Barnæskan

Byrjum á byrjuninni. Hvað heitir þú og hvar og hvenær fæddist þú? Ég heiti Sigríður Sigurðardóttir. Ég fæddist 12. júní 1943 á Laugarbrekku í Skagafirði. Við bjuggum á bænum sem heitir Hlíðarendi, lítill bær í hlíðinni, með fjall að baki og á að framan. Þar ólst ég upp ásamt þremur systkinum, Jóni, Guðrúnu og Magnúsi. Pabbi hét Sigurður Jónsson og mamma Ingibjörg Magnúsdóttir.

Kafli 1 · Barnæskan

Hvað er það fyrsta sem þú manst eftir? Fyrsta minningin er þegar ég sat á eldhúsgólfinu og sá mömmu vera að baka. Lykt af brauðinu fyllti allt húsið. Pabbi var hljóður maður en hlý, hann sýndi ást með verkum frekar en orðum. Mamma var kjarninn í heimilinu, alltaf í gangi, alltaf með eitthvað á prjónum.

Kafli 1 · Barnæskan

Hvernig var daglegt líf á bænum þegar þú varst barn? Allir höfðu sín verkefni. Við börnin hjálpuðum til eftir getu; sáum um hestana, sóttum vatn og hirtum garðinn. Sumarið var rólegt og langt en veturinn erfiður. Pabbi og bræður hans sáu um búskapinn en við konurnar um heimilið. Það var líf þar sem allir þurftu á öllum að halda.

Kafli 1 · Barnæskan

Var eitthvað sem þú hlökkuðust sérstaklega til sem barn? Ég hlakkaði alltaf til sumarsins og réttanna, þegar allir bændur á svæðinu komu saman til að reka sauðfé af fjallinu. Það var eins og hátíð; allir mættu, börnin léku sér saman og konurnar bjuggu til mat. Þetta var samfélagið okkar og þetta var skemmtilegt.

Kafli 1 · Barnæskan

Er einhver minning úr bernsku sem þú hefur borið með þér alla tíð? Á vetrum las mamma fyrir okkur á kvöldin; Jón Árnason, Snorra-Eddu og gömul kvæði. Pabbi sagði stundum sögur frá þeim sem höfðu byggt þessar slóðir. Eitt kvöld sat ég með pabba úti og við horfðum á norðurljósin saman. Hann sagði ekkert, ég sagði ekkert. Þögnin, kuldinn, ljósið og pabbi við hliðina á mér. Þetta augnablik man ég enn.

Kafli 2 · Skólaárin

Var einhver kennari sem hafði sérstök áhrif á þig eða mótaði skoðanir þínar? Já, Sigurjón kennari í grunnskólanum. Hann sá að ég var forvitin og gaf mér alltaf fleiri bækur en öðrum. Hann sagði við mömmu að þessa stúlku þyrfti að senda í skóla í Reykjavík. Það var hann sem kom þessu í kring og ég þakka honum fyrir það alla ævi.

Byrjaðu í dag — það er ókeypis

Tveir kaflar eru opnir án greiðslu. Engin greiðslukort. Engar skuldbindingar.

Sagan mín

Skráðu þig inn eða stofnaðu nýjan aðgang

Gleymt lykilorð?


eða

🔒 Gögn þín eru geymd á öruggan hátt.

Lífssagan þín

Veldu kafla til að byrja eða halda áfram

Heildarframvinda
0
Svör
0/20
Spurning 1

🔴 Hlusta... talaðu nú
✓ Framvinda vistuð

Við erum að leggja lokahönd á frásögnina þína...

Tengjum saman minningar...
✍️ Skrifa 🖋 Móta ✨ Fínpússa

Hvað er Sagan mín?

Ég heiti María Björg og Sagan mín varð til úr einni einfaldri löngun, að heyra sögurnar af fólkinu sem mér þykir allra vænst um.

Ég keypti áskrift að erlendri síðu fyrir nokkrum árum, Storyworth, og gaf foreldrum mínum. En sú lausn var óþjál. Var á ensku, var byggð upp á fastmótuðum spurningum, og var ekki sett upp með þeim hætti að hægt væri að taka upp þráðinn á auðveldan hátt sem myndi skila af sér fullmótaðri bók, einungis svörum við spurningum sem áttu ekki alltaf við hér á Íslandi. Mig langaði að til væri einfaldari lausn til að ýta undir skrif okkar nánustu.

Við vitum öll að þær eru til staðar, sögurnar. Barnæskan, fyrsta starfið, ástin, erfiðleikar og gleðin. En við bíðum alltof oft, þar til við finnum tímann til að spyrja, þar til við finnum tímann til að skrifa niður minningar, þar til réttu orðin koma til manns, eða þar til við finnum kjarkinn. Og svo líður tíminn.

Sagan mín er áralangur draumur stofnanda um að einfalda þessi skrif. Við leiðum notandann í gegnum lífssöguna með persónulegum spurningum, kafla fyrir kafla. Þú þarft ekki að vita hvar þú byrjar, við hjálpum þér að byrja svo þú getir skilið eftir svör við þeim spurningum sem þitt nánasta fólk vill kannski heyra en gleymist of oft að spyrja.

Útkoman er saga í þínum eigin orðum. Eitthvað sem þú getur gefið fjölskyldunni þinni, og sem þær munu geyma.

Þín saga er einstök. Við erum hér til að hjálpa þér að segja hana.

Algengar spurningar

Svör við því helsta varðandi ferlið, öryggið og úrvinnsluna.

Persónuvernd og öryggi

📚 Vistaðar útgáfur